Fyrir allt of mörgum árum þegar ég var að nema skipstjórnarfræði við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, var ég staddur í íslenskutíma hjá hvers kennara sem mér er löngu flogið úr minni því miður. Rámar þó eitthvað í að hann hafi svarað nafninu Þorvaldur, er þó ekki handviss.
Nema hvað að í einum tímanum þá áttu nemendur að semja ljóð sem átti að hefjast á orðunum “ég er”, og áður en það hverfur gersamlega úr minni þá kemur það hér:
Ég er ofdrykkjumaður,
Ég drekk bæði kvölds og morgna
Og milli mála
Ég skála
Í 12 ára gömlu viskíi.
Halda þarf því til haga að ég er langt því frá að hafa verið eða sé fyrirmynd fyrir téðu kvæði. Kann þó að vera að þynnka hafi verið eitthvað að þvælast fyrir þegar þetta var samið.
Góðar stundir.
Views: 0

Leave a Reply