Veljum Evrópskt

Undanfarið hef ég verið að leika mér að því að setja upp mitt eigið tölvuver í stofunni, sem mallar makindalega við hliðina á sjónvarpinu, samhliða því að læra á Python í hjáverkum. Hvað gerir maður annað þegar heilinn kallar á áskoranir og maður er ekki lengur að nema neitt eftir þrjár háskólagráður?

Heilinn í mér er oft eins og heilinn í Sherlock Holmes, sem lýsti því yfir að hugur sinn risi gegn stöðnun. Munurinn er sá að Holmes þurfti sjö prósent kókaínlausn þegar verkefnin vantaði, en ég læt mér nægja Python-villumeldingar.

Þetta brölt hefur samt vakið hjá mér spurningu sem mér finnst vert að velta upp: Af hverju ætti maður að borga risafyrirtækjum áskrift fyrir þjónustu sem maður hefur enga stjórn á? Myndirnar mínar, skjölin og gögnin liggja einhvers staðar í skýinu hjá fyrirtæki sem getur hækkað verðið, breytt skilmálunum eða lokað á aðganginn án þess að spyrja mig. Með opnum hugbúnaði get ég séð hvað er í gangi, lagað það sem mér líkar ekki og tekið gögnin mín með mér ef mér snýst hugur.

Heima hjá mér er þetta orðið að heilu vistkerfi: Linux á vélunum, Euro-Office í stað Microsoft Office eða Google Docs, og NAS-flakkari sem geymir gögnin mín og tónlistarupptökur. Ekkert af þessu er háð áskrift og enginn getur skrúfað fyrir það.

Vafrinn minn er Vivaldi, sem er að hálfu leyti íslenskur í anda, enda býr stofnandinn, Jón von Tetzchner, hér á landi. Vivaldi gefur notandanum stjórn á útliti, flipum og stillingum og safnar ekki upplýsingum um hann til að selja auglýsendum. Pósturinn minn er hjá Proton Mail, svissneskri þjónustu með dulkóðun frá enda til enda, sem les ekki póstinn minn til að átta sig á því hvað ég vil kaupa næst.

Þegar ég renndi yfir listann tók ég eftir dálitlu skemmtilegu: nánast allt á rætur sínar í Evrópu. Linux kom frá Finnanum Linus Torvalds, Python frá Hollendingnum Guido van Rossum, Vivaldi frá Noregi, Proton frá Sviss og Euro-Office frá evrópsku samstarfi. Ég ætlaði mér aldrei að „velja evrópskt“, en það gerðist samt. Kannski er það til marks um að við eigum meira af góðum valkostum en við höldum, og að það sé kominn tími til að nota þá.

Views: 0


Comments

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *