Rímar smá er það ekki?

Svona í ljósi nýjustu fregna eða ekki fregna af php veseni og af því maður var að reyna að gerast sjálfum sér nægur (sans substakkurinn) þá fór ég að hugsa hvort það væri ekki örugglega sniðug hugmynd að setja vefinn minn upp á umsjónarkerfi sem kostar ekki krónu og reiðir sig ekki á neitt aukaforrit eða þjónustu.

Niðurstaðan var sú að henda sér á kerfi sem heitir Hugo og er gersamlega snautt af öllu hjálparveseni. Mínusinn er sá að þú þarft að kunna smá fyrir þér í forritun og notar ekki vefviðmót (eins og substakkurinn er).

Er ekki lífið dásamlegt.