Áfengi er engin venjuleg neysluvara!

Kveikjan að þessari færslu er frumvarp á Alþingi, þar sem leyft yrði, ef samþykkt yrði, að selja áfengi í matvörubúðum meðal annars. Færslan er jafnframt verkefni í námskeiðinu Áhrifavaldar heilbrigðis, forvarnir og heilsuefling við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Samkvæmt Embætti landlæknis voru seldir 7.18 L af hreinum vínanda á hvert mannsbarn á Íslandi 15 ára og eldri. Sala í Fríhöfn og það sem áhafnir flugvéla og skipa mega taka með sér utanlands frá er ekki talið með. Samkvæmt mannfjöldatölum Hagstofu Íslands voru íbúar á Íslandi 15 ára og eldri árið 2014 258.861 manns. Það gera því 1.858.629,16 L í heildina af hreinum vínanda á árinu 2014. ...

13. nóvember 2015 · 5 mín.

Forgangsröðum rétt

Það er ekki ofsögum sagt að á LSH er afburðastarfsfólk til staðar þegar eitthvað bjátar á, fagfólk sem er fært í sínu starfi. Fjölskyldunni minni fjölgaði óvænt um eina stúlku, langt fyrir tímann, nánar til tekið eftir rúmlega 26 vikna meðgöngu . Hún er núna í góðum höndum hjá starfsfólkinu á Vökudeildinni og plumar sig vel miðað við aðstæður.\ Þegar maður er í svona stöðu þá getur maður ekkert annað en viðurkennt vanmátt sinn, það er bara einfaldlega hrikaleg tilfinning að geta ekkert gert nema að bíða og sjá til hvað gerist. Það gerir mann eiginlega ekkert annað en fúlan í skapi. ...

23. september 2013 · 2 mín.

Leyndarmál upplýst

Fyrir all nokkru síðan kom út afmælisblað Björgunarsveitarinnar Ægis í Garði eða á 60 ára afmæli sveitarinnar sem væntanlega hefði þá verið árið 1995. Í afmælisblaðinu mátti lesa sögu af því þegar Sigurði Bjarnasyni GK var sökkt um 70 sjómílur vestur af Reykjanesi. Höfundur kom ekki fram undir nafni. Það upplýsist hér með að sá sem heldur út þessari bloggsíðu er ábyrgur fyrir innihaldi sögunnar.

30. ágúst 2013 · 1 mín.

Af hverju forvarnir?

Ímyndið ykkur meðalstórt þorp sem liggur við árósa. Daglegt líf er í föstum skorðum, þar til dag einn er öskrað á hjálp. Þorpsbúar líta upp frá verkum sínum og sjá þá til manns sem kemur fljótandi niður ánna. Einn þorpsbúa, syndur eins og selur, hugsar sig ekki um heldur rífur sig úr vinnugallanum og hendir sér í ánna til bjargar manninum. Björgunin gekk að óskum en varla var björgunarmaðurinn búinn að kasta mæðinni þegar aftur heyrist kallað á hjálp frá öðrum manni sem kom fljótandi niður ánna. Aftur rýkur björgunarmaðurinn af stað og hendir sér á nýjan leik í ánna. En á meðan á því stendur, heyrist í þriðja manninum kalla á hjálp. ...

11. ágúst 2013 · 2 mín.

Ein lítil historía

Það er ekki úr vegi að rifja upp eina gamla sögu tengda sjávarútveginum fyrst að nýr sjávarútvegsráðherra Alþingis kemur úr röðum framsóknarmanna. Einu sinni fóru tveir útgerðarmenn úr Garði á fund þáverandi sjávarútvegsráðherra framsóknarmanna, Halldórs Ásgrímssonar. Sem er ekki í frásögur færandi, nema hvað að umræðuefnið átti að vera umsókn þeirra um að fá snurvoðarleyfi í Faxaflóa fyrir báta í þeirra eigu, svokallað Bugtarleyfi á meðal þeirra sem þekkja til. ...

15. júní 2013 · 1 mín.

Tómstundamenntum þjóðina!

Eitt sinn þegar ég var að gramsa á internetinu vegna verkefnis sem ég þurfti að skila af mér í háskólanáminu, þá rakst ég á frétt í Viðskiptablaðinu frá 1. janúar 2010 og nefnist “Kostnaður vegna öldrunar hleðst upp” og byggðist hún meðal annars á grein sem má finna á vef Samtaka atvinnulífsins. Þar kemur fram meðal annars að fjöldi íbúa á eftirlaunaaldri kemur til með að tvöfaldast á næstu fjórum áratugum í hlutfalli við fólk á vinnumarkaðsaldri ef við getum kallað það svo, það er að segja í Evrópu. Vegna þessa munu útgjöld vegna heilbrigðis- og lífeyrismála stóraukast og Framkvæmdastjórn ESB áætlar að þau muni aukast að jafnaði 3.4% af landsframleiðslu á ári, 2.3% vegna lífeyris og 1.1% vegna heilbrigðis og umönnunar aldraðra. ...

8. júní 2013 · 3 mín.

Hvað er tómstunda- og félagsmálafræði?

Það er ekki úr vegi fyrst maður er rétt að klára fimm ára háskólanám (3 ár B.A. og 2 ár M.Ed) í tómstunda- og félagsmálafræði að velta fyrir sér svarinu við þeirri spurningu sem dynur á mann á mannamótum, hvað er tómstunda- og félagsmálafræði? Áður en spurningunni verður svarað verður að byrja á því að útskýra hvað tómstundir og tómstundastarf er og tilurð þess náms. Tómstundir er skilgreint sem sá tími sem maður eyðir í skipulagt starf eða afþreyingu og fer fram í frítíma hvers og eins. Frítími er aftur á móti sá tími sem maður er ekki að sinna vinnunni sinni eða (skyldu)námi og uppfylla líkamlegar og andlegar þarfir, eins og að matast, sofa, þrífa sig og sinna heilsunni (Vanda Sigurgeirsdóttir, 2010). ...

2. júní 2013 · 5 mín.

Uppruni hljóðsjárinnar

Ekki er hægt að fjalla um tækninýjungar sem hafa auðveldað skipstjórum lífið án þess að minnast á tilkomu hljóðsjárinnar sem betur er þekkt á meðal íslenskra sjómanna sem “ASDIC” sem er skammstöfun á “AntiSubmarine Detection Investigation Committee” sem var nefnd á vegum breska sjóhersins og sá um eins og nafnið gefur í skyn að finna kafbáta. Sá bandaríski kom með sitt eigið nafn á sama fyrirbæri (sem þeir nota bene fengu gefins frá þeim bresku) og nefndu það SONAR. Þeim sem hafa blæti fyrir skammstöfunum er bent á að SONAR er skammstöfun fyrir “SOund Navigation And Ranging.” ...

5. ágúst 2012 · 3 mín.

Sam Tillen svarað

Enski knattspyrnumaðurinn Sam Tillen kemur oft og iðulega með góða pistla á www.fotbolti.net og gaman hefur mér fundist að lesa pistlana hans hingað til. Þó verð ég að fetta fingur út í síðasta pistil hans að knattspyrnumenn séu ekki fyrirmyndir annarra og sér í lagi barna „og setja ekki staðal í siðferðiskennd“ (Tillen, 2012) þegar á það var minnst í breskum sjónvarpsþætti, að oflaunaðir og [fordekraðir] knattspyrnumenn höguðu sér eins og hálfvitar innan sem utan vallar þegar þeir í raun og veru ættu að gera sér grein fyrir því að þeir væru einmitt fyrirmyndir. ...

27. júlí 2012 · 4 mín.

Uppruni dýptarmælisins

Ein mikilvæg uppfinning á rafeindasviðinu og snerti sjómenn var dýptarmælirinn. Áður fyrr þegar hans naut ekki við þurfti að lóða dýpið og var það gert á þann hátt að lóði var einfaldlega hent útbyrðis, oftast fyrir framan miðju skips, með áfastri taug sem var með hnútum með vissu millibili. Þegar lóðið staðnæmdist við botninn þá var það einfaldlega dregið upp aftur og taldir hve margir hnútar voru á línunni sem útbyrðis fór. Oftar en ekki var dýpið mælt í föðmum (e. fathoms) en það er lengdin á milli tvegga útréttra handa á fullorðnum karlmanni og var lengdin stöðluð við sex fet. ...

11. júlí 2012 · 3 mín.