Merkingin verður til í samtalinu

Þú rennir í gegnum símann að kvöldi til. Manneskja sem þú hefur aldrei hitt heldur litlu glasi af andlitskremi upp að myndavélinni, brosir og segir að það hafi „gjörbreytt húðinni hennar”. Innan sólarhrings hafa þúsundir keypt sama krem. Spurningin sem félagsfræðingurinn spyr er ekki hvort kremið virki, heldur hvers vegna orð ókunnugrar manneskju á skjá öðlast slíkt vald yfir hegðun okkar. Svarið má finna í hugmyndum sem eru næstum aldargamlar. Bandaríski félagsfræðingurinn Herbert Blumer (1900–1987) smíðaði árið 1937 hugtakið *symbolic interactionism* — táknbundin samskipti — og byggði þar á kenningum læriföður síns, George Herberts Mead. Þótt Blumer hafi mótað þessar hugmyndir löngu fyrir tíma samfélagsmiðla lýsa þær heimi áhrifavalda af óhugnanlegri nákvæmni. ...

14. júlí 2026 · 5 mín.

Tómstundamenntum þjóðina!

Eitt sinn þegar ég var að gramsa á internetinu vegna verkefnis sem ég þurfti að skila af mér í háskólanáminu, þá rakst ég á frétt í Viðskiptablaðinu frá 1. janúar 2010 og nefnist “Kostnaður vegna öldrunar hleðst upp” og byggðist hún meðal annars á grein sem má finna á vef Samtaka atvinnulífsins. Þar kemur fram meðal annars að fjöldi íbúa á eftirlaunaaldri kemur til með að tvöfaldast á næstu fjórum áratugum í hlutfalli við fólk á vinnumarkaðsaldri ef við getum kallað það svo, það er að segja í Evrópu. Vegna þessa munu útgjöld vegna heilbrigðis- og lífeyrismála stóraukast og Framkvæmdastjórn ESB áætlar að þau muni aukast að jafnaði 3.4% af landsframleiðslu á ári, 2.3% vegna lífeyris og 1.1% vegna heilbrigðis og umönnunar aldraðra. ...

8. júní 2013 · 3 mín.

Hvað er tómstunda- og félagsmálafræði?

Það er ekki úr vegi fyrst maður er rétt að klára fimm ára háskólanám (3 ár B.A. og 2 ár M.Ed) í tómstunda- og félagsmálafræði að velta fyrir sér svarinu við þeirri spurningu sem dynur á mann á mannamótum, hvað er tómstunda- og félagsmálafræði? Áður en spurningunni verður svarað verður að byrja á því að útskýra hvað tómstundir og tómstundastarf er og tilurð þess náms. Tómstundir er skilgreint sem sá tími sem maður eyðir í skipulagt starf eða afþreyingu og fer fram í frítíma hvers og eins. Frítími er aftur á móti sá tími sem maður er ekki að sinna vinnunni sinni eða (skyldu)námi og uppfylla líkamlegar og andlegar þarfir, eins og að matast, sofa, þrífa sig og sinna heilsunni (Vanda Sigurgeirsdóttir, 2010). ...

2. júní 2013 · 5 mín.