Ein lítil historía

Ég hef undanfarið marghlustað á bækurnar Híf opp! og Laggó! á Storytel. Báðar fjalla þær um gamansögur af sjómönnum og kann ég höfundi þeirra, Guðjóni Inga Eiríkssyni, miklar þakkir get endalaust hlegið þegar ég hlusta á Hjálmar Hjálmarsson lesa þessar bækur. Ég er sjálfur gamall sjómaður, faðir minn skipstjóri í fjöldamörg ár á þeim sama báti og hefur skotið rótum á bílaplaninu hjá Byggðasafninu á Garðskaga og telst til einna minjanna á því góða safni. ...

23. ágúst 2026 · 5 mín.

Önnur lítil historía

Tilefni þessarar stuttu sögu er allt þetta fjas og þras sem kemur upp um leið og það er orðað að endurskoða kvótakerfið. Þeir sem lifa og hrærast í því og eiga sem mest af kvótanum mega náttúrulega ekki hugsa til þess hryllings að missa spón úr aski sínum og hefja kvótakerfið upp til skýja sem eitt besta stjórntæki sem til er og hafi í raun og veru bjargað hinum ýmsu fiskistofnum. Tveir bátar eru á sjó í fyrsta sinn eftir langa brælu, netin úti allan tímann. Annar báturinn selur fiskinn beint í eigin fiskverkun – hinn landar á markað. Þessi sem landar á markað er með fleiri net í sjó og fleiri menn á – hinn er ekki eins fjölmennur og ekki eins mörg net í sjó. ...

11. janúar 2025 · 1 mín.

Ein lítil historía

Það er ekki úr vegi að rifja upp eina gamla sögu tengda sjávarútveginum fyrst að nýr sjávarútvegsráðherra Alþingis kemur úr röðum framsóknarmanna. Einu sinni fóru tveir útgerðarmenn úr Garði á fund þáverandi sjávarútvegsráðherra framsóknarmanna, Halldórs Ásgrímssonar. Sem er ekki í frásögur færandi, nema hvað að umræðuefnið átti að vera umsókn þeirra um að fá snurvoðarleyfi í Faxaflóa fyrir báta í þeirra eigu, svokallað Bugtarleyfi á meðal þeirra sem þekkja til. ...

15. júní 2013 · 1 mín.

Uppruni hljóðsjárinnar

Ekki er hægt að fjalla um tækninýjungar sem hafa auðveldað skipstjórum lífið án þess að minnast á tilkomu hljóðsjárinnar sem betur er þekkt á meðal íslenskra sjómanna sem “ASDIC” sem er skammstöfun á “AntiSubmarine Detection Investigation Committee” sem var nefnd á vegum breska sjóhersins og sá um eins og nafnið gefur í skyn að finna kafbáta. Sá bandaríski kom með sitt eigið nafn á sama fyrirbæri (sem þeir nota bene fengu gefins frá þeim bresku) og nefndu það SONAR. Þeim sem hafa blæti fyrir skammstöfunum er bent á að SONAR er skammstöfun fyrir “SOund Navigation And Ranging.” ...

5. ágúst 2012 · 3 mín.

Uppruni dýptarmælisins

Ein mikilvæg uppfinning á rafeindasviðinu og snerti sjómenn var dýptarmælirinn. Áður fyrr þegar hans naut ekki við þurfti að lóða dýpið og var það gert á þann hátt að lóði var einfaldlega hent útbyrðis, oftast fyrir framan miðju skips, með áfastri taug sem var með hnútum með vissu millibili. Þegar lóðið staðnæmdist við botninn þá var það einfaldlega dregið upp aftur og taldir hve margir hnútar voru á línunni sem útbyrðis fór. Oftar en ekki var dýpið mælt í föðmum (e. fathoms) en það er lengdin á milli tvegga útréttra handa á fullorðnum karlmanni og var lengdin stöðluð við sex fet. ...

11. júlí 2012 · 3 mín.

Úr handafli yfir í vélarafl

\ Fyrstu tilraunir til þess að sigla skipi með vélarafli má rekja allt aftur til aldamótanna 1700, en franski hugvitsmaðurinn Denis Papin átti að hafa gert tilraunir með gufuvél á Fuldafljóti í Þýskalandi. Tengdi hann gufuvélina við árar sem knúðu skipið áfram. Gufuvélin sem um ræddi var í eðli sínu háþrýstipottur sem þekkt er að nota við niðursuðu á matvörum. Næstu árin var unnið að þróun á gufuaflinu, þó ekki beinlínis til þess að knúa skip áfram, heldur til þess að knýja dælur sem dældu vatni úr kolanámum í Englandi. ...

17. júní 2012 · 3 mín.

Framfarir í siglingum og veiðum við Íslandsstrendur eru ekki kvótakerfinu að þakka

Núna upp á síðkastið líður varla dagur án þess að verða var við eintóna kór sveitarfélaga og útgerðarmanna í íslenskum fjölmiðlum um að verði hróflað við núverandi kvótakerfi þá muni það leggja sjávarútveg og bæi í rúst. Flestar ef ekki allar útgerðir munu leggjast af og fjöldi sjómanna og annarra missa vinnuna. Einatt kveður við einn tón í þessu harmakveini útgerðarmanna en það er að núverandi kvótakerfi sé grundvöllur alls hagnaðar sem sjávarútvegurinn hefur útvegað þjóðinni í gegnum aldirnar. Harmsöngurinn virðist vera að ná há C-inu í dag, þann 7. júní, þegar útgerðarmenn hafa skikkað starfsmenn sína til þess að taka þátt í mótmælum á Austurvelli, þar sem reyna skal til hins ýtrasta að halda því óbreyttu sem breyta á. ...

7. júní 2012 · 2 mín.