Hvað er tómstunda- og félagsmálafræði?
Það er ekki úr vegi fyrst maður er rétt að klára fimm ára háskólanám (3 ár B.A. og 2 ár M.Ed) í tómstunda- og félagsmálafræði að velta fyrir sér svarinu við þeirri spurningu sem dynur á mann á mannamótum, hvað er tómstunda- og félagsmálafræði? Áður en spurningunni verður svarað verður að byrja á því að útskýra hvað tómstundir og tómstundastarf er og tilurð þess náms. Tómstundir er skilgreint sem sá tími sem maður eyðir í skipulagt starf eða afþreyingu og fer fram í frítíma hvers og eins. Frítími er aftur á móti sá tími sem maður er ekki að sinna vinnunni sinni eða (skyldu)námi og uppfylla líkamlegar og andlegar þarfir, eins og að matast, sofa, þrífa sig og sinna heilsunni (Vanda Sigurgeirsdóttir, 2010). ...
