Bless bless WordPress

Rímar smá er það ekki? Svona í ljósi nýjustu fregna eða ekki fregna af php veseni og af því maður var að reyna að gerast sjálfum sér nægur (sans substakkurinn) þá fór ég að hugsa hvort það væri ekki örugglega sniðug hugmynd að setja vefinn minn upp á umsjónarkerfi sem kostar ekki krónu og reiðir sig ekki á neitt aukaforrit eða þjónustu. Niðurstaðan var sú að henda sér á kerfi sem heitir Hugo og er gersamlega snautt af öllu hjálparveseni. Mínusinn er sá að þú þarft að kunna smá fyrir þér í forritun og notar ekki vefviðmót (eins og substakkurinn er). ...

23. október 2026 · 1 mín.

Veljum Evrópskt

Undanfarið hef ég verið að leika mér að því að setja upp mitt eigið tölvuver í stofunni, sem mallar makindalega við hliðina á sjónvarpinu, samhliða því að læra á Python í hjáverkum. Hvað gerir maður annað þegar heilinn kallar á áskoranir og maður er ekki lengur að nema neitt eftir þrjár háskólagráður? Heilinn í mér er oft eins og heilinn í Sherlock Holmes, sem lýsti því yfir að hugur sinn risi gegn stöðnun. Munurinn er sá að Holmes þurfti sjö prósent kókaínlausn þegar verkefnin vantaði, en ég læt mér nægja Python-villumeldingar. ...

18. október 2026 · 2 mín.

Tilraun til skáldskapar

Fyrir allt of mörgum árum þegar ég var að nema skipstjórnarfræði við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, var ég staddur í íslenskutíma hjá hvers kennara sem mér er löngu flogið úr minni því miður. Rámar þó eitthvað í að hann hafi svarað nafninu Þorvaldur, er þó ekki handviss. Nema hvað að í einum tímanum þá áttu nemendur að semja ljóð sem átti að hefjast á orðunum “ég er”, og áður en það hverfur gersamlega úr minni þá kemur það hér: ...

7. september 2026 · 1 mín.

Leikurinn, leikreglurnar og það sem enginn spurði um

Niðurstaðan var þunn: 52,84 prósent sögðu nei, 47,16 prósent sögðu já þegar var búið að telja úr kjörkössunum. Gott og vel. Það sem var búið að dynja á áður en krossið var sett á kjörseðilinn þarf hins vegar að spyrja aðeins um. Ekki hverjir kusu hvað, heldur hvers vegna ákveðin rök hljómuðu sjálfsögð og önnur hljómuðu eins og sérviska. Kynnum til leiks Pierra Bourdieu. Hann fæddist árið 1930 í Denguin, litlu þorpi í Béarn í suðvesturhorni Frakklands. Faðir hans var póstmaður, kominn af leiguliðum, og heima var töluð béarníska frekar en franska. Þaðan komst Bourdieu inn í École normale supérieure í París, innsta hring franska menntakerfisins, þar sem synir borgarastéttarinnar lærðu að tala eins og þeir ættu staðinn. Það gerðu þeir reyndar. ...

6. september 2026 · 7 mín.

Ein lítil historía

Ég hef undanfarið marghlustað á bækurnar Híf opp! og Laggó! á Storytel. Báðar fjalla þær um gamansögur af sjómönnum og kann ég höfundi þeirra, Guðjóni Inga Eiríkssyni, miklar þakkir get endalaust hlegið þegar ég hlusta á Hjálmar Hjálmarsson lesa þessar bækur. Ég er sjálfur gamall sjómaður, faðir minn skipstjóri í fjöldamörg ár á þeim sama báti og hefur skotið rótum á bílaplaninu hjá Byggðasafninu á Garðskaga og telst til einna minjanna á því góða safni. ...

23. ágúst 2026 · 5 mín.

Þegar tungumál þróast

“Hlöðumk búkum hölda, höfuð fjúka af strjúpa, kveifur ljúka lífi, lyddur krjúpa í djúpi.” Þetta er ein af fáum setningum sem ég man eftir að hafa flutt á sviði í Samkomuhúsinu í Garði fyrir allt of mörgum árum síðan í hlutverki Palla pílu – eilífðarstúdentins sem var jafnframt samferða honum Litla-Grúti í gegnum leikverkið Járnhausinn eftir þá bræður Jónas og Jón Múla Árnasyni. Reyndar man ég eftir annari sem var stutt og laggott: “Ok munum vér husla hræit!” ...

9. nóvember 2025 · 2 mín.

Valkyrjur

Merking orða og tákna í síbreytilegu samhengi Tákn og orð eru ekki aðeins verkfæri til samskipta heldur einnig spegilmynd samfélagsins sem notar þau. Í síbreytilegum heimi hafa þau tilhneigingu til að þróast og taka á sig nýjar merkingar sem endurspegla breytingar á menningu, sögu og gildismati. Orðið Valkyrja er áhugavert dæmi um slíka þróun, þar sem það hefur umbreyst úr goðsagnakenndu tákni í ýmis konar menningarlegar túlkanir í gegnum aldirnar. ...

5. desember 2024 · 3 mín.

Forgangsröðum rétt

Það er ekki ofsögum sagt að á LSH er afburðastarfsfólk til staðar þegar eitthvað bjátar á, fagfólk sem er fært í sínu starfi. Fjölskyldunni minni fjölgaði óvænt um eina stúlku, langt fyrir tímann, nánar til tekið eftir rúmlega 26 vikna meðgöngu . Hún er núna í góðum höndum hjá starfsfólkinu á Vökudeildinni og plumar sig vel miðað við aðstæður.\ Þegar maður er í svona stöðu þá getur maður ekkert annað en viðurkennt vanmátt sinn, það er bara einfaldlega hrikaleg tilfinning að geta ekkert gert nema að bíða og sjá til hvað gerist. Það gerir mann eiginlega ekkert annað en fúlan í skapi. ...

23. september 2013 · 2 mín.

Leyndarmál upplýst

Fyrir all nokkru síðan kom út afmælisblað Björgunarsveitarinnar Ægis í Garði eða á 60 ára afmæli sveitarinnar sem væntanlega hefði þá verið árið 1995. Í afmælisblaðinu mátti lesa sögu af því þegar Sigurði Bjarnasyni GK var sökkt um 70 sjómílur vestur af Reykjanesi. Höfundur kom ekki fram undir nafni. Það upplýsist hér með að sá sem heldur út þessari bloggsíðu er ábyrgur fyrir innihaldi sögunnar.

30. ágúst 2013 · 1 mín.

Ein lítil historía

Það er ekki úr vegi að rifja upp eina gamla sögu tengda sjávarútveginum fyrst að nýr sjávarútvegsráðherra Alþingis kemur úr röðum framsóknarmanna. Einu sinni fóru tveir útgerðarmenn úr Garði á fund þáverandi sjávarútvegsráðherra framsóknarmanna, Halldórs Ásgrímssonar. Sem er ekki í frásögur færandi, nema hvað að umræðuefnið átti að vera umsókn þeirra um að fá snurvoðarleyfi í Faxaflóa fyrir báta í þeirra eigu, svokallað Bugtarleyfi á meðal þeirra sem þekkja til. ...

15. júní 2013 · 1 mín.